Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Regluleg mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur árið 2025

Дата публикации: 13-05-2026 09:00:00

Regluleg laun voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði árið 2025. Ef eingöngu er horft til launafólks í fullu starfi voru regluleg laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur. Um 64% fullvinnandi launafólks er með regluleg laun undir meðaltali.

Основное содержимое страницы с новостью.

FRÉTT LAUN OG TEKJUR 13. MAÍ 2026

Regluleg laun1 voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði árið 2025. Ef eingöngu er horft til launafólks í fullu starfi voru regluleg laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur. Um 64% fullvinnandi launafólks er með regluleg laun undir meðaltali. Það skýrist af dreifingu launa. Lægstu launin dreifast á mun minna bil en hæstu launin sem veldur því að hæstu launin hafa mun meiri áhrif á meðaltalið en lægstu launin.

Heildarlaun fólks í fullu starfi voru að meðaltali 1.058 þúsund krónur árið 2025. Þá var helmingur karla í fullu starfi með heildarlaun yfir 1.007 þúsund krónum á mánuði en helmingur kvenna í fullu starfi var með heildarlaun yfir 902 þúsund krónum á mánuði. Að jafnaði voru karlar í fullu starfi með fleiri greiddar vinnustundir en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir að baki heildarlaunum karla þannig að meðaltali 176,9 stundir á mánuði árið 2025 en greiddar stundir kvenna 169,9 stundir. Fleiri greiddar stundir að jafnaði hjá körlum skýrir að hluta til hærri heildarlaun þeirra. Að auki er íslenskur vinnumarkaður mjög kynskiptur og störfuðu til dæmis um 17% starfandi karla hjá hinu opinbera samanborið við 40% starfandi kvenna2 árið 2025.

Forstjórar og framkvæmdastjórar með hæstu meðallaunin
Sé horft til einstakra starfa3 voru forstjórar og aðalframkvæmdastjórar fyrirtækja og stofnana að jafnaði með hæst heildarlaun eins og verið hefur síðustu ár eða um 2,5 milljónir króna að meðaltali á mánuði árið 2025. Dómarastörf, sérfræðistörf við lækningar, störf yfirmanna framleiðslu- og rekstrardeilda í þjónustufyrirtækjum, störf tengd ráðgjöf og sölu verðbréfa, störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjórn, sérfræðistörf við flugumsjón og yfirmenn tölvudeilda eru dæmi um störf þar sem heildarlaun eru að meðaltali hærri en 1,7 milljónir króna á mánuði. Lægstu heildarlaunin voru hins vegar í skrifstofustörfum við bóka- og skjalavörslu, póstflokkun, kótun og þess háttar þar sem heildarlaun voru að jafnaði um 597 þúsund krónur á mánuði, störfum tengdum barnagæslu (641 þúsund krónur á mánuði) og störfum við handþvott og pressun (647 þúsund krónur á mánuði).

Heildarlaun dreifast misjafnt eftir starfsstéttum
Meðaltal heildarlauna fullvinnandi eftir starfsstéttum árið 2025 var á bilinu 766 til 1.634 þúsund krónur á mánuði, lægst hjá ósérhæfðu starfsfólki en hæst hjá stjórnendum. Dreifing heildarlauna er nokkuð mismunandi eftir starfsstéttum, sem getur skýrst af ólíkum störfum innan einstakra starfsstétta. Það á meðal annars við um stjórnendur en í þeim hópi er að finna bæði æðstu stjórnendur fyrirtækja og yfirmenn deilda.

Launadreifing heildarlauna í fullu starfi sýnir meðal annars að nærri 63% fullvinnandi starfsfólks í þjónustu og umönnun er með lægri heildarlaun en sem nema 800 þúsund krónum á mánuði og um 13% voru með heildarlaun á bilinu 600 – 650 þúsund. Launadreifing heildarlauna skrifstofufólks er mun einsleitari en innan annarra stétta þar sem um 65% fullvinnandi voru með heildarlaun á bilinu 600 til 900 þúsund krónur á mánuði. Mun meiri dreifing heildarlauna var sjáanleg á meðal sérfræðinga, stjórnenda og iðnaðarfólks.

Nánar um gögnin
Hagstofan birtir samræmda tímaröð fyrir árin 2014-2025 með upplýsingum um laun starfsstétta, launaþegahópa og einstakar atvinnugreinar. Í talnaefninu er einnig að finna upplýsingar um rúmlega 200 störf launafólks í fullu starfi þar sem birt eru nokkur launahugtök auk dreifingar fyrir hvert starf.

Áður birtar niðurstöður fyrir árið 2024 hafa verið endurskoðaðar og endurreiknaðar. Því má sjá breytingar á tölugildum frá síðustu birtingu fyrir árið 2024. Um er að ræða bráðabirgðaniðurstöður sem byggja á launagögnum Hagstofunnar sem ná til tæplega 100 þúsund launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Niðurstöður byggja á fyrirtækjarannsókn launagreiðenda með 10 starfsmenn eða fleiri og nær hún til stærsta hluta vinnumarkaðarins. Nánar um þekju rannsóknar, skilgreiningar og lýsingar á aðferðum má finna í lýsigögnum á vef Hagstofunnar.

Stytting vinnuvikunnar, sem samið var um í kjarasamningum árin 2019 og 2020, hefur ekki áhrif á mánaðarlaun þar sem laun haldast óbreytt þó að vinnustundum að baki mánaðarlaunum fækki. Stytting vinnuvikunnar kom að mestu til framkvæmda árið 2020 á almennum vinnumarkaði en árið 2021 og aftur 2025 hjá hinu opinbera. Auk breytinga á vinnutímaákvæðum í kjarasamningum er einnig heimild til þess að þjappa vinnudeginum saman sem um nemur kaffitímum og ef heimildin er nýtt hefur sú breyting einnig áhrif á greiddar stundir. Frá 2019 hefur greiddum stundum fækkað sem bæði má rekja til styttingar vinnuviku og fækkunar yfirvinnustunda.

1 Regluleg laun starfsfólks bæði í fullu- og hlutastarfi. Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í fullt starf.
2 Laun eftir launþegahópi, starfsstétt og kyni 2014-2025
3 Störf sem ná til starfsfólks í fullu starfi og birt eru í talnaefni Hagstofunnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is Deila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Heildartekjur einstaklinga rúmar 10,5 milljónir árið 2025013.1603-09-2026
2Vísitala heildarlauna hækkaði um 6,2% á milli ára á öðrum ársfjórðungi012.1109-09-2026
3Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9% á milli ára á fyrsta ársfjórðungi011.3409-06-2026
4Frétt um laun 2025 frestað020.206-05-2026
5Launavísitala lækkaði um 0,3% í maí015.5223-06-2026
6Launasumma í maí hækkaði um 5,8% á milli ára012.0916-07-2026
7Launavísitala lækkaði um 0,3% í júlí015.5221-08-2026
8Launasumma í apríl hækkaði um 4,8% á milli ára012.0905-06-2026
9Launavísitala hækkaði um 1,5% í apríl014.7322-05-2026
10Launasumma í júní hækkaði um 4,5% á milli ára012.0919-08-2026

Классификация: Экономика. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 11.62. Источник: www.hagstofan.is.