Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Ferðamálastofa telur nú gesti Heimskautsgerðisins við Raufarhöfn

Дата публикации: 21-09-2026 13:03:00

Ferðamálastofa hóf nýverið að telja gesti sem koma í Heimskautsgerðið við Raufarhöfn, sem er nyrsti bær Íslands, alveg undir heimskautsbaug.
 
Gönguteljarinn við Heimskautsgerðið er kærkomin viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum ...

Основное содержимое страницы с новостью.

Heimskautsgerðið. Mynd: Markaðasstofa Norðurlands.

Heimskautsgerðið. Mynd: Markaðasstofa Norðurlands.

Ferðamálastofa hóf nýverið að telja gesti sem koma í Heimskautsgerðið við Raufarhöfn, sem er nyrsti bær Íslands, alveg undir heimskautsbaug.

Gönguteljarinn við Heimskautsgerðið er kærkomin viðbót við talningarkerfi Ferðamálastofu á vinsælum áfangastöðum ferðamanna vítt og breitt um landið, en gögn úr þeim talningum má finna á Mælaborði ferðaþjónustunnar. Skoða má álagið eftir klukkustundum, dögum, mánuðum og lengri tímabilum. Gögn berast Ferðamálastofu sjálfvirkt um 4G/5G fjarskiptakerfi landsins.

Heimskautsgerðið hefur notið vaxandi vinsælda á undanförnum misserum og full ástæða til að fylgjast með þróun staðarins sem hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Talningarnar eru nýttar til að meta álag, þjónustuþörf og frekari uppbyggingu. Mikil uppbygging á staðnum hefur þegar átt sér stað, m.a. með framlagi úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Heimskautsgerðið sækir innblástur í norræna goðafræði, stjörnufræði og samspil sólarljóss, skugga og árstíðaskipta. Hugmyndin að Heimskautsgerðinu er sprottin úr vangaveltum Erlings Thoroddsen um hvernig mætti nýta hina endalausu víðáttu, miðnætursólina og heimskautsbirtuna sem einkenna svæðið. Listamaðurinn Haukur Halldórsson þróaði hugmyndina áfram og hannaði mannvirkið með vísunum í dvergatal Völuspár og fornan sagnaheim.

Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál og hlið þess snúa til höfuðáttanna. Í miðju þess rís súla sem gegnir lykilhlutverki í samspili ljóss og skugga. Innan gerðisins má einnig finna ýmis táknræn verk sem tengjast tíma, áttum, náttúruöflum og stjörnuhimninum. Á hæðinni fyrir ofan Raufarhöfn býður Heimskautsgerðið upp á víðáttumikið útsýni yfir hafið og víðerni Norðausturlands (heimild: northiceland.is).

Nánari upplýsingar gefur Jóhann Viðar Ívarsson á rannsóknasviði Ferðamálastofu, johann@ferdamalastofa.is, 899 2000.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Yfir 200 gönguleiðir á vef Ferðamálastofu07.3311-09-2026
2Fagráð um öryggismál á Sólheimajökli tekið til starfa04.8718-09-2026
3Endurskoðaðar leiðbeiningar og gátlistar vegna öryggisáætlana09.5702-09-2026
4Könnun um áhrif lokunar 2G og 3G farsímakerfa á ferðaþjónustu04.8319-08-2026
5Hættulegar aðstæður á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls09.3125-08-2026
6Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 015.2107-09-2026
7Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt05.3323-09-2026
8314 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna í ágúst015.2110-09-2026
9Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila09.8718-09-2026
10Björn hittade Islands första mygga: ”Folk blev som galna”06.9423-09-2026

Классификация: Арктика. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 8.59. Источник: www.ferdamalastofa.is.