Fagráð ferðaþjónustufyrirtækja um öryggismál á Sólheimajökli hefur formlega tekið til starfa. Ráðið er samstarfsvettvangur fyrirtækja sem starfa á Sólheimajökli og hefur það að markmiði að stuðla að auknu öryggi ferðamanna, efla upplýsingamiðlun og samvinnu fyrirtækja á svæðinu.

Sólheimajökull. Mynd: Markaðsstofa Suðurlands - www.south.is
Fagráð ferðaþjónustufyrirtækja um öryggismál á Sólheimajökli hefur formlega tekið til starfa. Ráðið er samstarfsvettvangur fyrirtækja sem starfa á Sólheimajökli og hefur það að markmiði að stuðla að auknu öryggi ferðamanna, efla upplýsingamiðlun og samvinnu fyrirtækja á svæðinu.
Stofnun fagráðsins á rætur að rekja til samráðsfundar sem Ferðamálastofa boðaði til í júlí sl. vegna breytinga sem orðið hafa á Sólheimajökli og þeirra áhrifa sem þær kunna að hafa á öryggi og starfsemi á svæðinu. Í kjölfar fundarins lýstu fyrirtæki sem starfa á jöklinum yfir áhuga á að koma á formlegum samstarfsvettvangi um öryggismál.
Ferðamálastofa hefur í framhaldinu aðstoðað fyrirtækin við undirbúning og stofnun fagráðsins. Fyrirtækin sem taka þátt hafa samþykkt starfsreglur ráðsins þar sem meðal annars er kveðið á um hlutverk þess, aðild, upplýsingamiðlun og samstarf um öryggismál.
Á stofnfundi ráðsins var Stephan Mantler, fulltrúi Háfjalls, kjörinn formaður og Francesco Li Vigni frá Arctic Adventures kjörinn varaformaður.
Ferðamálastofa fagnar því að fagráðið hafi tekið til starfa. Með því skapast formlegur vettvangur fyrir fyrirtæki á svæðinu til að miðla upplýsingum, ræða breytingar á aðstæðum og vinna sameiginlega að fyrirbyggjandi öryggismálum. Slíkt samstarf er mikilvægt til að bregðast við síbreytilegum aðstæðum á Sólheimajökli og stuðla að auknu öryggi ferðamanna og starfsfólks á svæðinu.
Fyrir spurningar eða nánari upplýsingar er hægt að senda póst á oryggi@ferdamalastofa.is
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Ferðamálastofa telur nú gesti Heimskautsgerðisins við Raufarhöfn | 0 | 8.59 | 21-09-2026 |
| 2 | Yfir 200 gönguleiðir á vef Ferðamálastofu | 0 | 7.33 | 11-09-2026 |
| 3 | Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt | 0 | 5.33 | 23-09-2026 |
| 4 | Endurskoðaðar leiðbeiningar og gátlistar vegna öryggisáætlana | 0 | 9.57 | 02-09-2026 |
| 5 | Hættulegar aðstæður á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls | 0 | 9.31 | 25-08-2026 |
| 6 | Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila | 0 | 9.87 | 18-09-2026 |
| 7 | Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 | 0 | 15.21 | 07-09-2026 |
| 8 | Könnun um áhrif lokunar 2G og 3G farsímakerfa á ferðaþjónustu | 0 | 4.83 | 19-08-2026 |
| 9 | 314 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna í ágúst | 0 | 15.21 | 10-09-2026 |
| 10 | Björn hittade Islands första mygga: ”Folk blev som galna” | 0 | 6.94 | 23-09-2026 |