Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Skólastjórnendur og kennarar frá þremur löndum heimsóttu VMA

Дата публикации: 19-10-2026 07:00:00

Kennaraheimsóknir

Основное содержимое страницы с новостью.

Kennararnir frá Belgíu og Slóveníu ásamt Dagnýju Huldu Valbergsdóttur og Jóhannesi Árnasyni. Frá vin…

Kennararnir frá Belgíu og Slóveníu ásamt Dagnýju Huldu Valbergsdóttur og Jóhannesi Árnasyni. Frá vinstri: Dagný Hulda, Miguel, Pieter, Ellen, Nathalie, Hanne, Matjaž og Jóhannes.

Í síðustu viku var, eins og oft áður, gestkvæmt í VMA. Sex kennarar frá Belgíu og Slóveníu voru í skólanum og kynntu sér kennsluna á bæði bóklegum og verklegum námsbrautum og einnig var í skólanum íslenskur kennari sem starfar við verknámsskóla í Danmörku.

Erasmus+ samstarf VMA við skóla út um alla Evrópu birtist í ýmsum myndum. Frá VMA fara nemendur með kennurum í heimsóknir í skóla og einnig fara kennarar í skólaheimsóknir (svokallaða starfsspeglun) í Evrópu og á móti koma í VMA kennarar frá öðrum löndum, eins og í liðinni viku. Allar þessar heimsóknir hafa það að leiðarljósi að víkka út sjóndeildarhring nemenda og kennara, að kynna sér hvernig staðið er að kennslu í öðrum löndum og fá um leið innsýn í ólíka menningarheima. Allt er þetta til þess fallið að styrkja, þroska og efla.

Sem fyrr segir voru sjö kennarar sem starfa í þremur löndum í heimsókn í VMA í síðustu viku. Fimm þeirra komu frá Belgíu, annars vegar tveir frá skóla í Brussel og hins vegar þrír frá skóla í De Pinte. Sjötti kennarinn kom frá Slóveníu.

Hér má sjá þessa sex kennara. Lengst til vinstri er Miguel Detemmerman, skólastjóri í GO ! Erasmusatheneum De Pinte framhaldsskólanum í smábænum De Pinte í flæmskumælandi hluta Belgíu, um það bil 15 km frá Ghent, Pieter Vielfont skólastjóri GO!4TECH BRUSSEL, sem er raungreina- og verknámsskóli í Brussel, Ellen Pauwels alþjóðafulltrúi GO!4TECH BRUSSEL, Nathalie Hanssens þýsku- og flæmskukennari í GO! Erasmusatheneum De Pinte, Hanne tungumálakennari í sama skóla og loks Matjaž Dlouhy efnafræði- og stærðfræðikennari í Gimnazija Ledina framhaldsskólanum í Ljubljana í Slóveníu.

Hanne, Nathalie og Miguel frá DePinte voru í starfsspeglun í VMA og kynntu sér eitt og annað í skólastarfinu. Matjaz var sömuleiðis í starfsspeglun og kynnti sér stærðfræðikennsluna hjá Hilmari Friðjónssyni og einnig kynnti hann sér kynjafræðikennslu Snorra Björnssonar. Þá fékk innsýn í kennslu á verknámsbrautum skólans, bæði í hársnyrtiiðn og á byggingadeild. Pieter og Ellen frá Brussel voru í VMA sl. fimmtudag og föstudag, fyrst og fremst til að kynna sér möguleika á frekara samstarfi við VMA, m.a. með möguleika á nemendaskiptum í matvælagreinum.

Sjöundi kennarinn sem var í VMA í liðinni viku er íslenskur, Hjörtur Gíslason, sem starfar í verkmenntaskólanum U Nord í Hilleröd í Danmörku. Hann var með fyrirlestur og námskeið á rafiðnbraut en milli U Nord og VMA hafa skapast sterk tengsl og fór hópur nemenda og kennara af brautinni í heimsókn í U Nord í apríl sl.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1VMA tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna07.906-10-2026
2Kennarar fræðast í Gryfjunni06.416-10-2026
3Annar nemendahópurinn í framreiðslu í VMA07.4605-10-2026
4Átta pör í starfsmannahópnum í VMA08.420-05-2026
5Bleiki dagurinn í VMA07.7421-10-2026
6Haustfrí í VMA06.0523-10-2026
7Undankeppni Norrænu nemakeppninnar í beinu streymi06.5217-10-2026
8Í námi í VMA og spilar með KA og þremur yngri landsliðum í blaki09.7209-10-2026
9Prófa eitt og annað í NÁSSI06.7808-10-2026
10Tveir starfsmenn sem hafa starfað við VMA frá upphafi hætta störfum07.9729-05-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 7.06. Источник: www.vma.is.