Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Kennarar fræðast í Gryfjunni

Дата публикации: 16-10-2026 15:11:00

Starfsþróun

Основное содержимое страницы с новостью.

Það er margt um manninn í Gryfjunni í VMA í dag enda mættir kennarar frá þremur framhaldskólum, VMA,…

Það er margt um manninn í Gryfjunni í VMA í dag enda mættir kennarar frá þremur framhaldskólum, VMA, MA og Framhaldsskólanum á Laugum.

Eftir hádegi í dag – eftir að kennslu lauk – komu kennarar VMA og tveggja annarra framhaldsskóla á Norðurlandi, MA og Framhaldsskólans á Laugum, saman í Gryfjunni til þess að meðtaka fræðslu af ýmsum toga og jafnframt að hittast og eiga góða stund saman. Það er því óhætt að segja að það hafi verið heldur betur þéttskipað í Gryfjunni í dag.

Stefán Haukur Björnsson, samfélagslögreglumaður á Akureyri, reið á vaðið og ræddi um stöðu fíkniefnamála hjá ungu fólki. Kom fram hjá honum að sem fyrr séu fíkniefni af ýmsum toga í umferð og umhugsunarvert sé að það sé jafnvel auðveldara fyrir ungt fólk að nálgast þau en áfengi. Að erindi Stefáns loknu fékk hann fjölda spurninga frá kennurum um eitt og annað er lýtur að ávana- og fíkniefnum og hvernig skólarnir geti lagt sitt af mörkum í forvörnum.

Í öðru erindi dagsins ræddi fulltrúi Samtakanna 78 um málefni hinsegin fólks og orðræðuna í skólasamfélaginu. Loks var Kjartan Sigurðsson með erindi um vinnustaðamenningu.

Auk þessarar samfélagsfræðslu kennara í Gryfjunni hófst eftir hádegi í dag í VMA svokallað Norðurlan tölvuleikjamót, sem stendur fram á sunnudag, 18. október. Aðgangur er ókeypis.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1VMA tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna07.906-10-2026
2Bleiki dagurinn í VMA07.7421-10-2026
3Haustfrí í VMA06.0523-10-2026
4Skólastjórnendur og kennarar frá þremur löndum heimsóttu VMA07.0619-10-2026
5Undankeppni Norrænu nemakeppninnar í beinu streymi06.5217-10-2026
6Prófa eitt og annað í NÁSSI06.7808-10-2026
7Húfumátun hjá útskriftarnemum08.5912-10-2026
8Erasmus+ vika í VMA05.2912-10-2026
9Nemendur á listnáms- og hönnunarbraut sýna í kvöld gjörning á A! gjörningahátíð06.2908-10-2026
10Nemendur af íþrótta- og lýðheilsubraut í Lillehammer/Gausdal05.4621-10-2026

Классификация: Общество. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 6.4. Источник: www.vma.is.