Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Nemendur á listnáms- og hönnunarbraut sýna í kvöld gjörning á A! gjörningahátíð

Дата публикации: 08-10-2026 14:48:00

A! gjörningahátíð

Основное содержимое страницы с новостью.

Átta af fjórtán nemendum listnáms- og hönnunarbrautar í áfanganum Innsetningaverk og gjörningalist. …

Átta af fjórtán nemendum listnáms- og hönnunarbrautar í áfanganum Innsetningaverk og gjörningalist. Fimm nemendur sem sýna gjörninginn Dómarinn í Mjólkurbúðinni kl. 19:30 í kvöld.

A! gjörningahátíð hefst á Akureyri í kvöld og verða sem fyrr margir áhugaverðir viðburðir í boði.

Klukkan 19.30 í kvöld verða nemendur á listnáms- og hönnunarbraut í Mjólkurbúðinni – sal Myndlistarfélagsins með gjörning sem þeir kalla Dómarinn / The Judge.

Í kynningu á gjörningnum segir:

Að dæma einhvern við fyrstu kynni.
Dómarinn fjallar um samfélagið og endurspeglaða hugmynd þess á eigin sjálfsmynd. Hafa samfélagsmiðlar áhrif á sjálfsmynd ungmenna? Hefur samfélagslegt umhverfi áhrif á tjáningu? Stendur þú ósjálfrátt sem dómari samfélagsins?

A! gjörningahátíð var fyrst haldin árið 2015 og hefur vaxið með hverju árinu. Arna G. Valsdóttir, kennari á listnáms- og hönnunarbraut, hefur frá byrjun lagt drjúgt af mörkum við skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar og hún er einmitt kennari nemendanna á listnáms- og hönnunarbraut sem sýna gjörninginn í kvöld í Mjólkurbúðinni. Það skal tekið fram að nemendur listnáms- og hönnunarbrautar hafa frá upphafi tekið þátt í A! gjörningahátíð en núna á haustönn er í fyrsta skipti kenndur sérstakur áfangi fyrir nemendur á þriðja ári listnáms- og hönnunarbrautar sem ber yfirskriftina Innsetningarverk og gjörningalist.

Í lýsingu á áfanganum segir:

Nemandinn vinnur með listformin innsetningaverk og gjörningalist auk þess að kanna tengsl þeirra við sviðslistir. Nemandinn fær þjálfun í að vinna með rými, tíma og líkama og þróar eigin verk með fjölbreyttum miðlum listformanna. Áhersla er á skapandi hugmyndavinnu, tilraunir, skráningu ferlis og gagnrýna umræðu. Nemandinn kynnist og kynnir sér verk listamanna sem vinna rýmistengd verk. Hann ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur. Hluti námsins fer fram í tengslum við valda list- og menningarviðburði í nærumhverfinu.

Fjórtán viðburðir verða á A! gjörningahátíð, sem eins og fyrr segir hefst í kvöld og verður líka annað kvöld og lýkur á laugardagskvöldið. Hér er dagskrá hátíðarinnar.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Prófa eitt og annað í NÁSSI06.7808-10-2026
2Haustfrí í VMA06.0523-10-2026
3Annar nemendahópurinn í framreiðslu í VMA07.4605-10-2026
4Bleiki dagurinn í VMA07.7421-10-2026
5Opnað fyrir seinar umsóknir03.2728-05-2026
6VMA tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna07.906-10-2026
7Ritlistakeppni Ungskálda 2026023.3307-10-2026
8Alfa byggingalausnir gaf byggingadeild þakdúka08.2615-10-2026
9Undankeppni Norrænu nemakeppninnar í beinu streymi06.5217-10-2026
10Kennarar fræðast í Gryfjunni06.416-10-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 6.29. Источник: www.vma.is.