Scania-vél
Inn á gólf í sal vélstjórnar í VMA er nú komin nýleg díselvél af gerðinni Scania, sem mun nýtast mjög vel í kennslu vélstjórnarnema. RARIK gaf skólanum vélina en hún þjónaði um tíma sem aflgjafi Grímseyinga.
Um er að ræða léttbyggða, hraðgenga vél með rafala sem Vilhjálmur Kristjánsson kennari í vélstjórn segir að nýtist afar vel í mælingar og önnur verkefni vélstjórnarnema. Vélin er nú þegar farin að nýtast í kennslu. Hér eru vélstjórnarnemar í mælingaverkefni.
Kostur við þessar tegundir véla segir Vilhjálmur að sé sú staðreynd að þær séu ekki fyrirferðamiklar en gefi hins vegar mikla orku. Fyrir vikið eru slíkar vélar m.a. notaðar mikið í báta.
Önnur vél sem notuð var í hálfan annan áratug í Grímsey er einnig í vélaflota vélstjórnar. Hún er af gerðinni Volvo Penta árg. 1999.
VMA þakkar RARIK fyrir rausnarlega gjöf.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haustfrí í VMA | 0 | 6.05 | 23-10-2026 |
| 2 | Bleiki dagurinn í VMA | 0 | 7.74 | 21-10-2026 |
| 3 | Skólastjórnendur og kennarar frá þremur löndum heimsóttu VMA | 0 | 7.06 | 19-10-2026 |
| 4 | Erasmus+ vika í VMA | 0 | 5.29 | 12-10-2026 |
| 5 | Nemendur af íþrótta- og lýðheilsubraut í Lillehammer/Gausdal | 0 | 5.46 | 21-10-2026 |
| 6 | Undankeppni Norrænu nemakeppninnar í beinu streymi | 0 | 6.52 | 17-10-2026 |
| 7 | Kennarar fræðast í Gryfjunni | 0 | 6.4 | 16-10-2026 |
| 8 | Alfa byggingalausnir gaf byggingadeild þakdúka | 0 | 8.26 | 15-10-2026 |
| 9 | „Með allt á hreinu“ verður uppsetning vetrarins hjá Leikfélagi VMA | 0 | 7.9 | 20-10-2026 |
| 10 | Aivis Egle minirallijā ''Latvija'' debitēs pie ''Škoda Fabia R5'' stūres | 0 | 4.29 | 21-10-2026 |