Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Í Green-verkefninu í Roermond

Дата публикации: 13-10-2026 07:00:00

Holland

Основное содержимое страницы с новостью.

Nemendur fjórir á rafdeild VMA sem voru í Erasmus+ verkefni í Hollandi í síðustu viku.

Nemendur fjórir á rafdeild VMA sem voru í Erasmus+ verkefni í Hollandi í síðustu viku.

Í síðustu viku voru fjórir nemendur og þrír kennarar frá rafdeild VMA í Erasmus+ verkefninu Green (Green Revolution Environmental Education Nurturing) í Wings Agora skólanum í Roermond í Hollandi. Um er að ræða samstarfsverkefni fimm skóla í jafnmörgum löndum – auk Íslands og Hollands taka þátt í verkefninu skólar í Króatíu, Portúgal og Tyrklandi.

Green-verkefnið hófst í VMA í maí sl. og var því fram haldið í Roermond. Eins og yfirskrift verkefnisins gefur til kynna er áherslan á grænar lausnir og sjálfbærni. Nálgunin er mismunandi, í fyrsta áfanga verkefnisins í VMA var horft til grænnar og endurnýtanlegrar orku en í Hollandi var stóra verkefnið að hanna rafeindastýringu fyrir svokallaðan lóðréttan garð (e. Vertical Garden) sem ætlunin er að setja upp í öllum þátttökuskólunum.

Sem fyrr segir tóku fjórir nemendur úr rafdeild VMA þátt í verkefninu í Roermond – þrír í rafvirkjun og einn í rafeindavirkjun – auk kennaranna Hauks Eiríkssonar, Óskars Inga Sigurðssonar og Gísla Arnar Guðmundssonar.

Roermond er um 60 þúsund manna bær í héraðinu Limburg í suðausturhluta Hollands, skammt frá landamærum að Belgíu og Þýskalandi.

Green-verkefnið heldur áfram í vetur. Á vorönn hittast fulltrúar þátttökuskólanna í Portugal.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Erasmus+ vika í VMA05.2912-10-2026
2Haustfrí í VMA06.0523-10-2026
3Nemendur af íþrótta- og lýðheilsubraut í Lillehammer/Gausdal05.4621-10-2026
4Kennarar fræðast í Gryfjunni06.416-10-2026
5Undankeppni Norrænu nemakeppninnar í beinu streymi06.5217-10-2026
6Dutch navy to take part in Nato exercise in Greenland next month022.7411-08-2026
7Активисты в Нидерландах призвали власти страны начать использовать вакцину "Спутник V"0001-04-2021
8Skólastjórnendur og kennarar frá þremur löndum heimsóttu VMA07.0619-10-2026
9Dutch destinations: there is more to Alkmaar than cheese022.7216-06-2026
10Belgium and Netherlands open new high-voltage power line024.3905-08-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 10.41. Источник: www.vma.is.